Fótbolti

Emil lagði upp bæði mörk Hellas í mikilvægum sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Emil í baráttunni í dag.
Emil í baráttunni í dag. Vísir/Getty
Emil Hallfreðsson lagði upp bæði mörk Hellas Verona í mikilvægum 2-1 sigri á Caglari í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Emil lagði upp fyrsta markið á níu mínútu, en þá skoraði goðsögnin Luca Toni. Staðan var 1-0 í hálfleik.

Hafnfirðingurinn var aftur á ferðinni á 56. mínútu þegar hann lagði upp annað mark Hellas fyrir Juan Ignacio Gomez Taleb. Hann hefur lagt upp síðustu fjögur mörk Hellas í deildinni.

Daniele Conti minnkaði muninn fyrir Caglari undir blálokin, en nær komust Caglari menn ekki.

Þannig urðu lokatölur, en með sigrinum lyfti Hellas sér upp í fjórtánda sæti deildarinnar. Cagliari er í átjánda sætinu með 20 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×