Fótbolti

Emil ekki í leikmannahópi Verona | Markalaust hjá Juventus

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Carlos Tévez komst lítt áleiðis gegn varnarmönnum Udinese í dag.
Carlos Tévez komst lítt áleiðis gegn varnarmönnum Udinese í dag. vísir/getty
Emil Hallfreðsson var ekki í leikmannahópi Verona sem tapaði fyrir Palermo með tveimur mörkum gegn einu í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Panagiots Tachtsidis kom Verona yfir á 8. mínútu en Paulo Dybala og Andrea Belotti tryggðu Sikileyjarliðinu sigurinn með mörkum í sitt hvorum hálfleiknum.

Hörður Björgvin Magnússon sat allan tímann á varamannabekknum þegar Cesena vann óvæntan sigur, 2-1, á Lazio á heimavelli. Cesena er þó enn í 19. og næstneðsta sæti deildarinnar en liðið er nú fjórum stigum frá fallsæti.

Þá gerði Juventus markalaust jafntefli við Udinese á útivelli. Ítalíumeistararnir eru þó með sjö stiga forskot á Roma á toppi deildarinnar.

Úrslit dagsins:

Sassuolo 3-1 Inter

Atalanta 2-1 Cagliari

Palermo 2-1 Verona

Udinese 0-0 Juventus

Cesena 2-1 Lazio

Chievo 1-2 Napoli

Torino 5-1 Sampdoria




Fleiri fréttir

Sjá meira


×