Innlent

Embættismenn fá 7,15 prósent hækkun

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Stjórnarráðshúsið þar sem forsætisráðuneytið er til húsa. Frá næstu mánaðamótum tekur gildi sérstök ákvörðun kjararáðs um laun ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra stjórnarráðsins.
Stjórnarráðshúsið þar sem forsætisráðuneytið er til húsa. Frá næstu mánaðamótum tekur gildi sérstök ákvörðun kjararáðs um laun ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra stjórnarráðsins. Fréttablaðið/Vilhelm
Laun allra sem undir kjara­ráð heyra hækkuðu 1. júní síðastliðinn um 7,15 prósent. Í úrskurði ráðsins er hækkunin sögð komin til vegna úrskurðar gerðardóms fyrir áramót um launakjör átján aðildarfélaga í Bandalagi háskólamanna (BHM).

Við hækkunina verða allnokkrar breytingar á heildarlaunakjörum embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa sem undir ráðið heyra.

Forseti Íslands er launahæsti þjóðkjörni einstaklingurinn með tæpar 2,48 milljónir króna í mánaðarlaun. Á eftir honum er forsætisráðherra með 1,6 milljónir, eftir tæplega 109 þúsund króna hækkun, og svo forseti Alþingis og aðrir ráðherrar sem eru með 1,49 milljónir króna í laun.

Laun embættismanna sem ekki eru þjóðkjörnir breytast einnig. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er enn launahæsti embættismaðurinn með nær 2,1 milljónar króna mánaðarlaun. Fast á hæla Herði kemur Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, með rúmar tvær milljónir. Í þriðja sæti er Már Guðmundsson seðlabankastjóri, mánaðarlaun Más nema ríflega 1,9 milljónum króna.

Frá mótmælum BHM og Félags hjúkrunarfræðinga við stjórnarráðshúsið í Lækjargötu í verkfalli og kjaradeilu samtakanna við ríkið í fyrrasumar. Fréttablaðið/Pjetur


Um næstu mánaðamót taka svo gildi sérstakar breytingar kjararáðs á kjörum ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra stjórnarráðsins. Laun þeirra voru síðast ákvörðuð árið 2005 og því liggja ekki fyrir upplýsingar um núverandi kjör þeirra á vef kjararáðs en hækkunin nemur allt að 37 prósentum að sögn RÚV.

Eftir breytinguna verða heildarlaun ráðuneytisstjóranna hærri en laun ráðherra, eða rúmlega 1,8 milljónir króna á mánuði hjá ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins og yfir 1,7 milljónir hjá öðrum ráðuneytisstjórum. Laun skrifstofustjóra sem næst standa ráðuneytisstjóra fara í 1,3 milljónir. Aðrir skrifstofustjórar fá 1,2 milljónir.

Ákvörðun um almennu hækk­unina var tekin í kjararáði 9. júní síðastliðinn af Jónasi Þór Guðmundssyni, Huldu Árnadóttur, Óskari Bergssyni, Svanhildi Kaaber og Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni.

Bent er á að í lögum um ráðið segi að það skuli taka mál til meðferðar þegar því þyki þurfa og ætíð ef orðið hafi verulegar breytingar á þeim launum í þjóðfélaginu sem höfð skulu til viðmiðunar samkvæmt lögunum eða á störfum þeirra sem úrskurðarvald þess tekur til.

Bent er á að í úrskurði gerðardóms hafi verið ákvæði um að laun aðildarfélaga í BHM ættu að hækka um 5,5 prósent frá 1. júní síðastliðnum, auk þess sem þar hafi verið kveðið á um 1,65 prósenta framlag til útfærslu menntunarákvæða úrskurðarins og eftir atvikum annarra þátta í stofnanasamningum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júlí 2016


Tengdar fréttir

Yfirvinnutaxti embættismanna hækkar um 14,3 prósent

Auk þess að hækka laun Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, um 24,6 prósent með sérstakri ákvörðun hefur kjara­ráð breytt viðmiðum yfirvinnugreiðslna. Við breytinguna hækka heildarmánaðarlaun annarra embættismanna sem undir ráðið heyra um nálægt þremur til rúmra sex prósenta.

Ráðherrar fá 100 þúsund króna hækkun

"Það er mikið óréttlæti fólgið í þessu,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, um 9,3 prósent launahækkun þeirra sem heyra undir kjararáð.

Laun forstjóra leiðrétt afturvirkt

Mánaðarlaun Arnórs Guðmundssonar, forstjóra Menntamálastofnunar, nema alls 1.125.701 krónu, samkvæmt ákvörðun Kjararáðs í mánuðinum. Ákvörðunin er afturvirk og gildir frá 1. október í fyrra.

Dómarar fá tuga prósenta launahækkun

Störf dómara eiga sér ekki hliðstæðu á almennum vinnumarkaði. Tryggja verður sjálfstæði þeirra segir kjararáð. Kjör dómara eigi ávallt að vera meðal hinna bestu sem ríkisvaldið geti veitt. Hæstaréttardómarar hækka um 48 prósent

Fyrrverandi dómarar fá 26 prósent hækkun á eftirlaunum

Kjararáð hækkaði heildarlaun dómara sérstaklega umfram aðra í desember með vísan í aukið álag og nauðsyn þess að efla trúverðugleika dómstóla. Vegna þessa hækka eftirlaun 29 fyrrverandi dómara eða maka þeirra um 26 prósent.

Álagsgreiðslurnar voru orðnar hluti launanna

Ekki gefur rétta mynd af sérstakri endurskoðun kjararáðs á launum dómara í lok desember að horfa til launa þeirra fyrir breytingu án þess að taka tillit til álagsgreiðslna sem upphaflega áttu að vera tímabundnar.

Kjararáð hækkar laun æðstu embættismanna ríkisins

Hækkanir kjararáðs á launum æðstu embættismanna og kjörinna fulltrúa endurspegla hvernig árangur BHM í að fá menntun metna til launa hefur "smurst“ yfir á aðrar stéttir, að mati formanns BHM.

Eftirlaun dómara hækkuðu alls um 38 prósent í fyrra

Eftirlaun dómara hækkuðu um alls 38 prósent í fyrra með tveimur ákvörðunum kjararáðs. Meðalhækkun eftirlauna hjá ríkinu var 11,8 prósent . Sanngjörn og eðlileg hækkun, segir formaður Dómarafélagsins.

Forstjóri Landsvirkjunar launahæstur

Gögn kjararáðs og Alþingis sýna að launagreiðslur til þingmanna og ráðherra fara í tæpar 713 milljónir króna á ári eftir ákvörðun um 9,3 prósenta hækkun. Þingmenn fá aukagreiðslur vegna nefndaforystu og búsetu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×