Innlent

Embætti umboðsmanns aldraðra verði komið á fót

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/stefán
Lögð verður fram þingsályktunartillaga á morgun þess efnis að komið verði á fót embætti umboðsmanns aldraðra. Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks, er fyrsti flutningsmaður en fimm aðrir þingmenn sama flokks eru meðflutningsmenn.

Í þingsályktunartillögunni kemur fram að þörfin fyrir umboðsmanni aldraðra sé mikil. Stór hópur aldraðra sé í stöðugri baráttu við kerfið og fái aldrei aðstoð eða leiðréttingu sinna mála. Því sé nauðsynlegt að þessi hópur geti leitað til eins aðila með spurningar og athugasemdir. Mikið hafi vantað upp á að aldraðir hafi talsmann gagnvart stjórnvöldum.

Karl Garðarsson er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.vísir/gva
Þá segir að eldri borgarar standi berskjaldaðir gagnvart stofnunum og yfirvöldum og eigi oft á tíðum erfitt með að verja réttindi sín. Löggjöf varðandi málefni aldraðra sé flókin, ekki síst á sviði skatta, almannatrygginga og heilbrigðismála.

Hlutverk umboðsmanns aldraðra er að vera málsvari sístækkandi hóps aldraðra í þjóðfélaginu, að leiðbeina þeim um rétt sinn og vinna að almennri kynningu á málefnum sem tengjast öldruðum.

Gert er ráð fyrir að 67 ára og eldri fjölgi um rúmlega 26 þúsund á næstu fimmtán árum, eða um 71 prósent. Talið er að 80 ára og eldri fjögi um tæplega 6.600, eða 55 prósent. „Þörfin fyrir umboðsmann hefur aldrei verið ríkari en nú,“ segir í tillögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×