Golf

EM kvenna sett í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Íslenska kvennalandsliðið. Frá vinstri: Ragnhildur Kristinsdóttir, Anna Sólveig Snorradóttir, Sunna Víðisdóttir, Berglind Björnsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Signý Árnórsdóttir.
Íslenska kvennalandsliðið. Frá vinstri: Ragnhildur Kristinsdóttir, Anna Sólveig Snorradóttir, Sunna Víðisdóttir, Berglind Björnsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Signý Árnórsdóttir. mynd/gsí
Stærsta alþjóðlega golfmótið sem hefur verið haldið á Íslandi verður sett í kvöld.

Um er að ræða Evrópumót kvennalandsliða en það mun verða leikið á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.

Alls eru 20 þjóðir með lið í þessari keppni og margir af sterkustu áhugakylfingum Evrópu í kvennaflokki. Keppni hefst þriðjudaginn 5. júlí.

Keppnisfyrirkomulagið á EM er með þeim hætti að leiknar eru 36 holur fyrstu tvo keppnisdagana og telja fimm bestu skor af alls sex í hverri umferð. Þjóðunum er að því loknu skipt upp í A, B og C riðil þar sem leikin er holukeppni. Í A-riðli leika þjóðirnar sem enduðu í 1.-8. sæti í höggleiknum, í B-riðli leika þjóðirnar í sætum 9.-16. og í C-riðli leika þjóðirnar sem eru þar fyrir neðan.

EM lið Íslands verður þannig skipað en þrír kylfingar koma úr GR og þrír kylfingar úr GK.

Anna Sólveig Snorradóttir, GK – val landsliðsþjálfara

Berglind Björnsdóttir, GR – efst á stigalista

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK – efst á WAGR heimslista

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – efst í úrtökumóti fyrir kvennalandslið

Signý Arnórsdóttir, GK – val landsliðsþjálfara

Sunna Víðisdóttir, GR – val landsliðsþjálfara

Þjálfari: Úlfar Jónsson

Liðsstjóri: Ragnar Ólafsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×