Fótbolti

EM í dag: Forsetakosningar í Annecy og borgað undir Tólfuna til Nice

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
EM í dag er daglegur þáttur fréttateymis 365 frá Evrópumótinu í fótbolta. Þar fara blaðamenn Fréttablaðsins og Vísis yfir það helsta sem er að gerast á mótinu, hvað er að frétta af strákunum okkar og gefa Íslendingum heima smá innsýn inn í lífið á Evrópumótinu og borgunum sem strákarnir okkar heimsækja.

Í þessum þrettánda þætti ræða þeir Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Kolbeinn Tumi Daðason forsetakosningar landsliðsmanna, stuðning KSÍ til Tólfunnar og stöðu mála í Annecy þar sem okkar menn halda til fram að leiknum gegn Englandi í Nice á mánudag.

Þáttinn má sjá í spilaranum hér að ofan.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook , Twitter og Snapchat (sport365).  

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×