Fótbolti

EM dagbók: Velja orðin vel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Ósjaldan hafa heyrst spurningar á blaðamannafundum í Frakklandi um hvernig mönnum hugnast hugsanlegir andstæðingar í útsláttarkeppninni. Ég heyrði þá spurningu fyrst eftir leik Englands og Slóvakíu í riðlakeppninni, er ungverskur blaðamaður spurði Roy Hodgson hvernig honum litist nú á að spila gegn Ungverjalandi í 16-liða úrslitunum ef það yrði raunin.

Það varð auðvitað alls ekki raunin. Ekki frekar en þegar Patrice Evra var spurður af enskum blaðamanni hvernig honum myndi nú hugnast að Frakkland og England myndu mætast í 8-liða úrslitunum, áður en leikur Englendinga gegn Íslendingum í 16-liða úrslitunum fór fram.

Svar Patrice Evra vakti verðskuldaða athygli enda bað hann blaðamanninn um að gera ekki endilega ráð fyrir því að England myndi vinna Ísland. Að leyfa leiknum að minnsta kosti að fara fram fyrst.

Evra rifjaði upp þessi ummæli á blaðamannafundi í gær og bætti við að þó svo að Frakklandi ætlaði sér vitaskuld að vinna sigur á Íslandi í 8-liða úrslitunum bæri hann og franska liðið virðingu fyrir íslenska liðinu.

Það hafi svo enn fremur farið í taugarnar á honum þegar þeir sem fjölluðu um leikinn hafi fremur gert lítið úr frammistöðu íslenska liðsins með því að segja hversu lélegir Englendingar voru í leiknum.

Oftast er það engin tilviljun hvað menn láta út úr sér á blaðamannafundum, sérstaklega á við jafn stór tilefni og fyrir leik í 8-liða úrslitum á stórmóti. Ekki alltaf, en oftast. Orð sem menn velja sér móta ákveðna nálgun þeirra á leikinn, hvort sem er um hreinræktaðan sálfræðihernað að ræða eða lýsa því viðhorfi sem viðkomandi leikmaður eða þjálfari vill tileinka sér.

Tökum sem dæmi ummælin sem Cristiano Ronaldo lét út úr sér eftir jafntefli Íslands og Portúgals. Sá leikur virðist reyndar í órafjarlægð í minningunni, svo mikið hefur gerst síðan þá. En sú vanvirðing sem orð Ronaldo um fögnuð íslenska liðsins [Þeir munu aldrei vinna neitt] fólu í sér eru enn framarlega í huga fólks, ekki síst eftir velgengni íslenska liðsins síðan að sá leikur fór fram.

Sjálfsagt er Ronaldo alveg sama um hvað öðrum finnst um hann og það sem hann hefur að segja. Það breytir því ekki að þessi ummæli gerðu lítið til að hækka almenningsálitið á honum og portúgalska liðinu.

Með ummælum sínum í gær sýndi Evra íslenska liðinu virðingu og fyrir það ber að hrósa. Enda veit hann sem er að það væri algert glapræði að bera olíu að íslenska eldinum með vanhugsuðum ummælum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×