Fótbolti

EM dagbók: Sjáumst á fimmtudag!

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Íslenska liðið á Annecy-le-Vieux.
Íslenska liðið á Annecy-le-Vieux. Vísir/EPA
Starfsfólkið á hóteli okkar fjölmiðlamanna í Annecy er yndislegt. Þetta er fremur lítið hótel sem er þekktara fyrir veitingastaðinn sinn en sjálfa hótelstarfsemina. Stjarna matseðilsins er lasanja „hennar mömmu“ eins og rétturinn er auglýstur.

Það starfsfólk sem ég hef kynnst á hótelinu eru tvær konur í afgreiðslunni og svo kokkurinn. Fleiri virðast ekki vinna í afgreiðslunni á hótelinu. Þetta er einlægt fólk sem vill allt fyrir mann gera. Hinn dæmigerði Frakki þykir ekki vera með sérstaklega mikla þjónustulund og ég hef hitt nokkra sem gera lítið til að kveða niður þá steríótýpu.

En Annecy er eins og hótelið. Lítið og vinalegt. Þægilegt. Auðvelt að kynnast öllum staðháttum og auðvelt að komast um. Mjög hentugt þegar maður er að staldra stutt við.

Þessi orð eru svo rituð í París, einni mestu stórborg heims. Andstæðurnar við Annecy eru æpandi. Fjölmiðlahópurinn lenti hér fljótlega eftir hádegi og var ekið beinustu leið niður á Stade de France, sem var svo hringsólaður nokkrum sinnum þar til inngangur fjölmiðlamanna fannst eftir mikið höfuðklór.

Eftir að blaðamannafundi íslenska liðsins var lokið var haldið niður á hótel. Eða það héldum við. Ökuferðin gekk þokkalega. Við vissum að við vorum við hliðina á Moulin Rouge og þegar við keyrðum fram hjá þeim sögufræga stað vorum við komnir. Eða hvað? Áfram keyrðum við. Hring eftir hring eftir hring.

Rútubílstjórinn hafði villst. Aftur. Misskilningur á götuheitum olli því að við þurftum ekki að gera annað en að fara úr rútunni við Moulin Rouge, labba nokkra metra og þá vorum við komnir á hótelið.

Þetta hefði auðvitað aldrei gerst í Annecy, þar sem allt er nánast í göngufæri og innfæddir öllum hnútum kunnugir. Aron Einar Gunnarsson sagði einmitt á blaðamannafundinum í gær að Eiður Smári Guðjohnsen hefði sagt eftir komuna til Annecy frá Marseille að nú liði honum eins og hann væri kominn aftur heim.

Ég er hjartanlega sammála og hlakka til að hitta aftur vinalegu konuna á hótelinu í Annecy, sem kvaddi okkur með þessum einföldu skilaboðum: „Sjáumst á fimmtudaginn!“

Auðvitað er enginn okkar að fara heim til Íslands á morgun. Við klárum Austurríki í kvöld og og förum aftur heim, til Annecy, á morgun.


Tengdar fréttir

EM dagbók: Ég hafði engan eins og Lars

Eiríkur Stefán Ásgeirsson fylgir karlalandsliði Íslands hvert fótmál á Evrópumótinu í Frakklandi og deilir upplifun sinni með lesendum.

EM dagbók: Portkonur með tískuvit?

Tómas Þór Þórðarson fylgir karlalandsliði Íslands hvert fótmál á Evrópumótinu í Frakklandi og deilir upplifun sinni með lesendum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×