Körfubolti

Elvar nýliði ársins og setti skólamet

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elvar hefur spilað gríðarlega vel með Barry í vetur.
Elvar hefur spilað gríðarlega vel með Barry í vetur. vísir
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hefur átt góðu gengi að fagna með liði Barry í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum í vetur.

Elvar skipti yfir í Barry í sumar, eftir að hafa spilað með Martin Hermannssyni hjá LIU Brooklyn á síðasta tímabili, og fundið sig vel með nýja liðinu.

Elvar var valinn nýliði ársins í Sunshine State deildinni en hann gaf 8,5 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur sem var það mesta í deildinni.

Elvar setti einnig nýtt skólamet í stoðsendingum og var valinn í úrvalslið nýliða í Sunshine State deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×