Lífið

Eltihrellir Mila Kunis slapp af geðsjúkrahúsi og gengur nú laus

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stuart Lynn Dunn hefur áreitt Kunis í nokkur ár.
Stuart Lynn Dunn hefur áreitt Kunis í nokkur ár. vísir/getty
Eltihrellir leikkonunnar Mila Kunis strauk út af geðsjúkrahúsi í Kaliforníu og hefur verið lýst eftir honum. Maðurinn heitir Stuart Lynn Dunn hefur hefur í tvígang verið dæmdur fyrir að áreita Kunis.

Maðurinn strauk á laugardagskvöld og leitar lögreglan að honum. Í janúar árið 2012 fékk Kunis nálgunarbann á Dunn eftir að hann braust inn á heimili hennar.

Hann hélt áfram að elta hana sem endaði með því að hann var vistaður á geðsjúkrahús. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×