Sport

Elti uppi þjóf sem stal símanum hennar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Serena Williams er ein fremsta íþróttakona heims.
Serena Williams er ein fremsta íþróttakona heims. Vísir/Getty
Tennisstjarnan Serena Williams, ein fremst íþróttakona heims, greindi frá áhugaverðri uppákomu sem átti sér stað á dögunum á Facebook-síðu sinni.

Williams var að snæða á veitingastað með systur sinni, Venus, og dönsku tennisstjörnunni Caroline Wozniacki þegar hún varð vör við mann sem stóð álengdar.

Áður en hún vissi af greip maðurinn símann hennar Williams sem brást við með því að rjúka upp, elta þjófinn uppi og hirða af honum símann. Eins og lesa má á lýsingunni varð þjófurinn hinn skömmulegasti á eftir.

Williams spurði hann í bræði sinni hvort hann hefði kannski tekið símann hennar í misgripum.

„Já, ætli það ekki bara. Þetta var svo ruglingslegt þarna inni,“ sagði þjófurinn þá. Williams hélt þá aftur inn á veitingastaðinn þar sem hún uppskar lófatak annarra gesta á veitingastaðnum.

Soooooo yesterday at dinner the CRAZIEST THING happened to me. I was sitting enjoying some Chinese food (delicious may I...

Posted by Serena Williams on Wednesday, November 4, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×