Lífið

Elskar morgunstundir

Marta Eiríksdóttir, jógakennari
Marta Eiríksdóttir, jógakennari
Nafn: Marta Eiríksdóttir

Aldur:29 ára

Starf: Jógakennari hjá World Class og starfsmaður í nýrri heilsuverslun sem Gló mun opna í haust.

Maki: Einhleyp.

Stjörnumerki: Tvíburi.

Hvað fékkstu þér í morgunmat? Dásamlegan grænan djús með fullt af engifer, sítrónu, agúrku, selleríi og lime og þeyting með möndlumjólk, banana, hnetusmjöri, grænu tei, lucuma, maca og frosnum bláberjum.

Uppáhaldsstaður? Álftanes á Mýrum þar sem fjölskylda mín er svo lukkuleg að eiga jörð með bústað og guðdómlegu útsýni.

Hreyfing? Jóga.

Uppáhaldsfatahönnuður? Malene Birger.

Uppáhaldsmynd? Það koma margar frábærar myndir upp í kollinn en sú fyrsta sem poppaði inn er The Intouchables. Yndisleg mynd sem fær mig til að kveikja á öllum tilfinningaskalanum.

Ertu A- eða B-manneskja? Nátthrafn sem elskar morgunstundir. Það er bara svo gaman að vera til að bæði er betra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×