Fótbolti

Elmar og félagar töpuðu gegn botnliðinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Theodór Elmar hefur gefið til kynna að hann sé ósáttur að fá ekki tækifæri með landsliði Íslands.
Theodór Elmar hefur gefið til kynna að hann sé ósáttur að fá ekki tækifæri með landsliði Íslands. Mynd/Heimasíða Randers
Theodór Elmari Bjarnasyni var skipt af velli í 1-0 tapi Randers gegn Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Nordsjælland hefur farið skelfilega af stað en liðið hafði aðeins unnið einn leik í fyrstu níu umferðum deildarinnar. Liðið varð danskur meistari árið 2012 og spilaði í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð.

Elmar, sem hlotið hefur töluvert lof fyrir leik sinn undanfarnar vikur, fór af velli á 82. mínútu. Randers er um miðja deild með tólf stig en Nordsjælland er á botninum með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×