Innlent

Elliði svarar fyrir sig: Segist aldrei hafa gagnrýnt áhöfn Baldurs

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. vísir/eyþór
Bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, segir að hann kannist ekki við að hafa hallað máli gagnvart starfsmönnum ferjunnar Baldurs, líkt og Halldór Jóhannesson yfirstýrimaður á Baldri, segir hann hafa gert.

Halldór skrifaði opið bréf þar sem hann bað Elliða um afsökunarbeiðni vegna ummæla sinna í garð áhafnar Baldurs en hann segir Elliða hafa verið með endalaus leiðindi og skítkast í þeirra garð.

Sjá einnig: Krefur bæjarstjóra Vestmannaeyja um afsökunarbeiðni

Í svari sínu til Halldórs biður Elliði hann um að benda sér á hvar hann hefur hallað máli gagnvart starfsfólki Baldurs. Hann segir að gagnrýni á Vegagerðina sé ekki það sama og gagnrýni á Eimskip eða það góða fólk sem þar starfi.

„Þekkt er ég er afar ósáttur við framgöngu Vegagerðarinnar gagnvart Vestmannaeyjum og Eyjamönnum. Ferðir ferjunnar eru skammtaðar úr hnefa, gjaldskrá í ferjuna er of há, bókunarkerfið er vonlaust og lengi má áfram telja.“

Hann segir að fullyrðingar Halldórs um meint skítkast sitt og leiðindi í garð áhöfn Baldurs séu alvarlegar aðdróttanir. Hann hafi hrósað áhöfninni bæði í ræðu og riti og ekki hitt nokkurn Eyjamann sem gagnrýnt hefur áhöfnina eða fundið að þjónustu hennar.

„Ég verð því að biðja þig um að finna þessum orðum þínum stað með tilvísun í hvar og hvenær ég hallaði máli gagnvart starfsmönnum Baldurs.

Á meðan þú leitar væri ágæt ef þú myndir einnig kanna hvort ég halla orði hvað þetta varðar gagnvart Eimskip, vinnuveitanda þínum. Við það kannast ég heldur ekki.

Finnir þú ásökunum þínum ekki stað, heldur bara gagnrýni á samgönguyfirvöld, verður þú að sýna þá kurteisi að draga orð þín til baka. Okkur getur öllum orðið á. Það er mannlegt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×