Lífið

Ellen greiddi fjögurra ára háskólanám fyrir heilan árgang og allt trylltist

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ansi vegleg gjöf.
Ansi vegleg gjöf. Vísir
Þáttastjórnandinn og grínistinn Ellen DeGeneres getur verið einstaklega gjafmild. Það kom heldur betur í ljós á dögunum þegar heill árgangur úr grunnskóla í New York kom í heimsókn.

Ellen stundar það grimmt að gefa áhorfendum, og í sumum tilfellum gestum, gjafir á meðan þætti hennar stendur og nemendur í Summit Academy fengu ansi veglega gjöf í þætti hennar.

Ellen tilkynnti þeim að hún myndi greiða fyrir fjögurra ára háskólanám í hvaða ríkisháskóla sem er í New York ríki fyrir nemendurna.

Líkt og sjá má í myndbandinu hér að neðan réðu nemendurnir sér vart af kæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×