Innlent

Ellefu þúsund krónur í dagpeninga vegna fæðis

Ríkisstarfsmaður á ferðalagi innanlands fær tæplega ellefu þúsund krónur í dagpeninga fyrir fæði. Á sama tíma reiknar Fjármálaráðuneytið með að fjögurra manna fjölskylda eyði tæpum þrjú þúsund krónum í mat á dag. Landbúnaðarráðherra segir að til greina komi að endurskoða þau neysluviðmið sem fram koma í frumvarpi um breytingar á virðisaukaskatti.

Eins og fram kom í fréttum í gær reiknar ráðuneytið með að hver máltíð einstaklings í fjögurra manna fjölskyldu kosti 248 krónur. Fyrir 248 krónu má til dæmis kaupa eitt kíló af kartöflum.

Reikna má með að ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands geti valið úr fjölbreyttari fæðu. Á vef Fjármálaráðuneytisins kemur fram að starfsmaður sem dvelur á sex til tíu tíma ferðalagi innanlands fær 5.400 krónur í dagpeninga fyrir mat og 10.800 krónur ef hann dvelur lengur.

Á sama tíma er neysluviðmið ráðuneytisins fyrir fjögurra manna fjölskyldi 2.980 krónur á dag, eða 248 krónur hver máltíð á einstakling. Ríkisstarfsmaður gæti því keypt sér 43 máltíðir samkvæmt þessu.

En hvað gerist þegar fólk með lágar tekjur kaupir í matinn?

„Þau velja, freistast frekar eða neyðast, til að kaupa sér óhollari saðningu þar sem að minna er um hollustuefni en meira af sykri og óhollri fita og svo framvegis,“ segir Laufey Steingrímsdóttir, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands.

Málið var til umfjöllunar á Alþingi í dag.

„Annað er það að hér hafi orðið einhver mistök sem hljóta að kalla á að fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um hækkun á virðisaukaskatti á matvælum verði endurskoðaðar. Eða þá hitt að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafi náð slíkum árangri í spariinnkaupum að þau skuldi okkur öllum hinum námskeið í því hvernig eigi að láta enda ná saman með matarkostnaði upp á 248 krónur fyrir einstakling hver máltíð,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.

Í fjarveru Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, var Sigurður Ingi Jóhansson, landbúnaðar og sjávarútvegsráðherra til svara.

„Varðandi þeir fréttir sem hafa verið um neysluviðmið tel ég það einboðið að þingnefnd sem fjalli um þetta mál taki það til ítarlegrar skoðunar. Komi í ljós að menn séu að miða þar við röng viðmið, eða að einhverju leyti ekki fullnægjandi, þá býst ég við að í meðferð þingsins taki menn það til gagngerrar skoðunar og leysi úr því.“


Tengdar fréttir

Ríkið segir 250 krónur duga fyrir máltíðinni

Gert er ráð fyrir að það kosti 745 krónur að fæða hvern einstakling á dag. Fjögurra manna fjölskylda verji 92 þúsund krónum í mat og drykk á mánuði. Þetta eru þær tölur sem liggja til grundvallar í frumvarpi um breytingar á virðisaukaskatti.

Þingið á að fara yfir neysluviðmiðin

Sigurður Ingi Jóhannsson segir augljóst að þingið sé akkúrat í þeirri stöðu að yfirfæra forsendur fyrir breytingum á virðisaukaskatti.

"Fátækt er ekki skömm“

Hópur fólks skorar á ráðherra að ganga í hópinn Matargjafir. Þar óska bágstaddir eftir matargjöfum en hátt í fjórða þúsund er skráð í hópinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×