Körfubolti

Ellefu þristar hjá Curry í fjórða sigurleik Warriors í röð | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Steph Curry, leikmaður Golden State Warriors, fór hamförum í 126-111 sigurleik liðsins gegn Charlotte Hornets í nótt sem var fjórði sigur Warriors í röð í NBA-deildinni í körfubolta.

Curry, sem var hvíldur í síðasta leik, skoraði hvorki fleiri né færri en ellefu þriggja stiga körfur úr fimmtán skotum. Í heildina skoraði Curry 39 stig auk þess sem hann tók fimm fráköst og gaf átta stoðsendingar.

Dell Curry, pabbi Steph, var mættur til að horfa á soninn og hann fékk heldur betur sýningu en Klay Thompson skoraði sex þrista. Saman skoruðu þeir 17 þriggja stiga körfur sem er met í einum leik hjá bakvarðatvíeyki í deildinni.

Golden State er sem fyrr í efsta sæti vesturdeildarinnar með 42 sigra og aðeins sjö tapleiki en liðið er búið að vinna níu af síðustu tíu leikjum sínum.

Eftir skelfilegan janúar þar sem liðið tapaði fleiri leikjum en það vann byrjar febrúar betur hjá LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers. Liðið vann Minnesota Timberwolves í nótt, 125-97.

LeBron skoraði 27 stig og var stigahæstur hjá Cleveland eins og svo oft áður en auk þess tók hann átta fráköst og gaf tólf stoðsendingar. Kyrie Irving bætti við fjórtán stigum og fjórtán stoðsendignum fyrir meistarana sem eru með tveggja sigra forskot á toppi austurdeildarinnar.

Úrslit næturinnar:

Orlando Magic - Indiana Pacers 88-98

Cleveland Cavaliers - Minnesota Timberwolves 125-97

Boston Celtics 109-104

Brooklyn Nets - New York Knicks 90-95

Miami Heat - Atlanta Hawks 116-93

Detroit Pistons - New Orleans Pelicans 118-98

Dallas Mavericks - Philadelphia 76ers 113-95

Denver Nuggets - Memphis Grizzliez 99-119

Utah Jazz - Milwaukee Bucks 104-88

Phoenix Suns - LA Clippers 114-124

OKC Thunder - Chicago Bulls 100-128

Golden State Warriors - Charlotte Hornets 126-111

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×