Körfubolti

Ellefu ótrúleg heimsmet í körfubolta slegin | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Youtube-hópurinn Dude Perfect er þekktur fyrir frábær myndbönd þar sem þeir gera allskonar brögð í hinum og þessum íþróttum.

Í nýjasta myndbandi hópsins eru þeir að slá heimsmet í körfubolta en í heildina slá þeir tíu heimsmet og jafna eitt sem Harlem Globetrotters áttu einir.

Þeir hirða eitt met af Dwight Howard, leikmanni Houston Rockets, yfir lengsta körfuboltaskot sitjandi og annað er tekið af Nathaniel „Big Easy“ Lofton, einum frægasta leikmanni Harlem Globetrotters.

Ótrúlegasta skotið er þegar þeir slá metið yfir körfuboltaskot úr mestu hæð sögunnar. Metið var 126 metrar en Dude Perfect setti skot úr 152 metra hæð.

Dómari frá heimsmetabók Guinness var á staðnum og gaf strákunum vottorð fyrir hvert heimsmet sem var slegið.

Þessa skemmtilegu takta má sjá í myndbandinu hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×