Handbolti

Ellefu mörk í þýska handboltanum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hannes í leik með Eisenach.
Hannes í leik með Eisenach. Vísir/Heimasíða Eisenach
Oddur Grétarsson skoraði þrjú mörk og Anton Rúnarsson tvö mörk í þriggja marka tapi Emsdetten gegn Leipzig á heimavelli í kvöld, en leikið var í þýsku B-deildinni í handbolta.

Staðan í hálfleik var 11-10, Leipzig í hag. Leipzig er á toppnum með tíu stig, en Emsdetten er í níunda sæti með fimm stig.

Eisenach vann sex marka sigur á Großwallstadt, 26-20, eftir að hafa verið 15-9 yfir í hálfleik. Hannes Jón Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Eisenach, en Bjarki Már Elísson komst ekki á blað.

Fannar Þór Friðgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir gestina í Großwallstadt.

Eisenach er í sjötta sæti með jafn mörg stig, en Großwallstadt tveimur sætum neðar þó með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×