Innlent

Ellefta aftakan í Texas

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Juan Martin Garcia var tekinn af lífi í gær.
Juan Martin Garcia var tekinn af lífi í gær.
Ellefta aftakan í Texas á þessu ári fór fram í gær þegar hinn þrjátíu og fimm ára Juan Martin Garcia var tekinn af lífi. Hann var dæmdur til dauða fyrir rúmum fimmtán árum fyrir að hafa myrt mann eftir að hafa hirt af honum alls átta Bandaríkjadali.

Hvergi í Bandaríkjunum hafa eins margar aftökur átt sér stað og í Texas það sem af er ári, en ekkert annað ríki framfylgir eins mörgum dauðadómum í landinu. 

Fyrirhugaðar eru þrjár aftökur til viðbótar í Texas í ár, en alls hafa tuttugu og þrír verið teknir af lífi í sex ríkjum Bandaríkjanna það sem af er ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×