Innlent

Éljagangur heldur áfram fram á morgun

Júlía Margrét Einarsdóttir skrifar
Búist er við snjókomu og hálku víða um land fram á morgun.
Búist er við snjókomu og hálku víða um land fram á morgun.
Búist er við áframhaldandi éljagangi um vestanvert land og snjófjúki á fjallvegum fram á morgun.

Hitinn verður þó undir frostmarki á láglendi í dag en varað er við hálku á vegum í kvöld og í nótt og ofankomu.

Hálka og hálkublettur eru víða á Suður- og Vesturlandi.

Bannað er að aka um hálendið vegna frosts í jörðinni, til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru.

Fjallaferðalangar eru beðnir að virða akstursbann þar sem það er í gildi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×