Handbolti

Elísabet Gunnarsdóttir til liðs við Fram

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir boðin velkomin í Fram.
Elísabet Gunnarsdóttir boðin velkomin í Fram. Mynd/Heimasíða Fram
Línumaðurinn Elísabet Gunnarsdóttir er genginn til liðs við Fram. Elísabet, sem kemur úr Stjörnunni, skrifaði undir tveggja ára samning við Safamýrarliðið.

Framarar sendu frá sér fréttatilkynningu í gærkvöldi. Í henni segir meðal annars:

Ljóst er að það er félaginu mikill styrkur að fá leikmann á borð Elísabetu til liðs við sig. Elísabet sem er 27 ára hefur spilað  með íslenska A landsliðinu undan farin ár en hún er uppalin í Stjörnunni. Hún hefur bæði orðið Íslands- og bikarmeistari með Stjörnunni þar sem hún hefur leikið allan sinn feril.

Knattspyrnufélagið FRAM býður hana hjartanlega velkomna í félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×