Handbolti

Elín Jóna: Skrítið að mæta Gróttu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elín Jóna hefur átt afbragðs tímabil í Hafnarfirðinum.
Elín Jóna hefur átt afbragðs tímabil í Hafnarfirðinum. vísir/stefán
Markvörðurinn efnilegi, Elín Jóna Þorsteinsdóttir, verður í sérstakri stöðu í kvöld þegar Haukar mæta Gróttu í undanúrslitum Coca-Cola bikarsins í handbolta.

Elín Jóna er uppalinn hjá Gróttu en var lánuð til Hauka fyrir tímabilið. Hún mætir því „sínu liði“, sem hún er samningsbundin, í kvöld. Elín Jóna viðurkennir að þetta sé ekki óskastaða.

„Þetta leggst ágætlega í mig þótt það hafi ekki verið það skemmtilegasta að sjá Hauka og Gróttu dragast saman. En maður verður bara að gíra sig upp í leikinn og mæta 100% klár í hann,“ sagði Elín Jóna í samtali við Vísi í hádeginu.

„Þetta verður smá stressandi en samt bara skemmtilegt. Auðvitað er skrítið að mæta Gróttu, ég er búinn að vera í félaginu í meira en 10 ár,“ bætti markvörðurinn við.

Elín Jóna, sem er 19 ára gömul, hefur fundið sig vel með Haukum og átt stóran þátt í góðu gengi liðsins í vetur. Alfreð Örn Finnson, þjálfari Vals, gekk svo langt að segja að Elín Jóna hafi verið lykilinn að velgengni Haukanna þegar hann var beðinn um að spá í undanúrslitaleikina í Fréttablaðinu í dag.

Elín Jóna mætir Gróttu öðru sinni í kvöld.vísir/stefán
Haukar og Grótta hafa mæst einu sinni í vetur, þann 7. nóvember í Olís-deildinni. Þeim leik lyktaði með 21-21 jafntefli og Elín segist hafa fundið sig ágætlega í þeim leik.

„Þetta gekk nokkuð vel þótt manni finnist maður alltaf eiga eitthvað inni,“ sagði Elín Jóna sem getur orðið bikarmeistari annað árið í röð. Hún kom inn á undir lokin þegar Grótta rústaði Val, 29-14, í úrslitaleiknum í fyrra og gerði sér lítið fyrir og varði sex af þeim sjö skotum sem hún fékk á sig.

Elín Jóna hefur fulla trú á að Haukar geti lagt Íslands- og bikarmeistara Gróttu að velli og komist í úrslitaleikinn á laugardaginn.

„Auðvitað, annars værum við ekki í þessu. Við gætum alveg eins verið heima og horft á leikinn í sjónvarpinu. Við höfum 100% trú á að við getum unnið þær,“ sagði Elín Jóna ákveðin að lokum.

Leikur Gróttu og Hauka hefst klukkan 19:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×