Enski boltinn

Elías Már getur ekki hætt að skora

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Elías Már Ómarsson skorar og skorar.
Elías Már Ómarsson skorar og skorar. mynd/ifk
Elías Már Ómarsson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni en í kvöld skoraði hann þriðja mark liðsins í 3-1 útisigri gegn Sundsvall. Kristinn Steindórsson kom inn á hjá Sundsvall undir lokin.

Elías Már er nú búinn að skora í tveimur leikjum í röð og alls sex mörk í ellefu leikjum fyrir Gautaborgarliðið síðan hann kom þangað á láni frá Vålerenga í Noregi.

Þrátt fyrir að vera með sjóðheitan Elías Má í liðinu er Gautaborg úr leik í baráttunni um Evrópusæti en AIK gerði út um þá drauma með heimasigri gegn Häcken í kvöld.

Haukur Heiðar Hauksson var í byrjunarliði AIK sem skoraði sigurmarkið níu mínútum fyrir leikslok. AIK er með 56 stig í öðru sæti á eftir meisturum Malmö.

IFK Norrköping er einnig með 56 stig en Gautaborgarliðið er sjö stigum frá þessum liðum með 49 stig þegar aðeins sex stig eru eftir í pottinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×