Fótbolti

Elías Már á skotskónum í sænska bikarnum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Elías Már Ómarsson í landsleik
Elías Már Ómarsson í landsleik vísir/getty
Suðurnesjamaðurinn Elías Már Ómarsson reyndist hetja sænska stórliðsins Gautaborg þegar liðið vann nauman sigur á B-deildarliði Varberg í fyrstu umferð sænska bikarsins í dag.

Leikurinn var markalaus allt fram á 75.mínútu þegar Elías Már kom boltanum í netið og reyndist það eina mark leiksins.

Þetta var fyrsti keppnisleikur liðsins en keppni í deildarkeppninni í Svíþjóð hefst í apríl.

Óvissa var um framtíð kappans hjá Gautaborg en hann hefur spilað vel á undirbúningstímabilinu og fylgir því eftir með marki í fyrsta keppnisleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×