Fótbolti

Elías Már: Þeir eru duglegir að finna mig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Elías Már Ómarsson, 21 árs sóknarmaður frá Keflavík, hefur blómstrað eftir að hann kom til IFK Gautaborgar sem lánsmaður í upphafi síðasta mánaðar.

Elías Már er á mála hjá Vålerenga í Noregi en hefur fengið takmörkuð tækifæri þar á því eina og hálfa tímabili sem hann hefur spilað með félaginu síðan hann gekk til liðs við það frá Keflavík í ársbyrjun 2015.

Elías Már hefur nú skorað fjögur mörk í síðustu fimm leikjum IFK Gautaborgar en mark hans gegn Häcken má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

„Þetta hefur gengið mjög vel. Maður er að fá tækfæri til að byrja leiki og fær traust frá þjálfaranum,“ sagði Elías Már í samtali við íþróttadeild.

„Liðið er mjög gott og samherjarnir eru duglegir að finna mig. Þetta er eiginlega allt annað að hafa svona menn með sér og er ég mjög ánægður hér.“

Lánssamningur hans við Gautaborg rennur út í lok ársins en Elías Már er samningsbundinn Vålerenga til loka næsta árs.

Nánar verður rætt við Elías Má í Fréttablaðinu á morgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×