MÁNUDAGUR 20. MAÍ NÝJAST 09:00

Innileg fyrir framan alla

LÍFIÐ

Elfar Freyr: Þjálfarinn vildi ekki fá mig

Vísir Fótbolti 13. júní 2012 06:00
Elfar Freyr: Þjálfarinn vildi ekki fá mig
MYND / WWW.AEKFC.GR
Elfar Freyr Helgason æfir með Breiðabliki þessa dagana en knattspyrnumaðurinn, sem er á mála hjá AEK í Grikklandi, er í sumarfríi.

Mikil óvissa er um stöðu leikmanna hjá AEK. Félagið glímir við mikil fjárhagsvandræði og nýjustu fregnir herma að óvíst sé hvort liðið spili í efstu deild í Grikklandi á næstu leiktíð.

„Þetta er bölvað basl. Ég veit ekki einu sinni hvenær ég á að byrja að æfa aftur," segir Elfar aðspurður um nýjustu tíðindi úr herbúðum gríska liðsins. Hann segist vera laus allra mála verði félaginu vikið úr efstu deild og telur að það sama gildi um flesta leikmenn liðsins.

Elfar Freyr gekk til liðs við AEK frá Breiðabliki fyrir tæpu ári síðan. Hann hefur þó nánast eingöngu vermt varamannabekk inn hjá gríska liðinu.

„Ég ætla ekki að segja að það hafi verið erfitt. Það hefur eiginlega verið of létt," segir Kópavogsbúinn kíminn og vorkennir sjálfum sér greinilega ekki þrátt fyrir lítinn spiltíma.

„Lífið er alltaf gott en auðvitað snýst þetta um að spila. Ég bað um að fá að fara á lán en það klikkaði," segir Elfar sem stóð til boða að spila á Norðurlöndunum. Þjálfarinn neitaði honum hins vegar um að fara.


Þjálfarinn vildi ekki fá mig
Elfar var seldur til AEK sem fyrr segir í júlí á síðasta ári í skugga deilna Breiðabliks og AEK. Að sögn Blika átti Elfar Freyr aðeins að fara í læknisskoðun í Grikklandi en koma svo til móts við þá í Þrándheimi fyrir leik gærkvöldsins gegn Rosenborg í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Þangað kom Elfar Freyr aldrei og voru Blikar ósáttir við forráðamenn AEK sem sögðu ekkert slíkt samkomulag hafa verið fyrir hendi.

Miðað við það uppsteit sem varð við félagaskiptin reiknuðu flestir með því að Elfari Frey væri ætlað stórt hlutverk hjá gríska liðinu. Annað hefur komið á daginn.

„Það var ekki þjálfarinn sem vildi fá mig heldur meðlimir í stjórninni," segir Elfar og bætir við að þjálfarinn hafi verið eitt stórt spurningamerki.

„Hvaða gæi er þetta eiginlega?" grínast Elfar Freyr sem líkar vistin í Grikklandi þrátt fyrir allt ágætlega.

AEK skipti um þjálfara á tímabilinu og sá þjálfari er nú einnig farinn frá félaginu.

„Nú leita þeir að nýjum þjálfara en ég veit ekki á hverju þeir hafa efni," segir Elfar Freyr sem leiðist ekki lífið á Íslandi þessa dagana.

Blikar hafa skilað mörgum leikmönnum í atvinnumennsku undanfarin ár. Nokkrir þeirra eru nú sameinaðir á ný, í sumarfríi og má vænta að gæðin á æfingum Blika hafi ekki minnkað við komu þeirra.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fótbolti 19. maí 2013 21:15

Ancelotti vill fara til Real Madrid

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Ítalinn Carlo Ancelotti verði næsti þjálfari Real Madrid. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 13:55

Alfreð og félagar úr leik

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Heerenveen þegar liðið tapaði 2-1 gegn Utrecht í síðari leik liðanna í umspili um sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 13:23

Silfur til Ólafs Inga og brons til Eiðs Smára

Anderlecht varð í dag belgískur meistari í knattspyrnu eftir 1-1 jafntefli gegn Ólafi Inga Skúlasyni og félögum í Zulte Varegem í lokaleik úrslitakeppni efstu liða deildarinnar. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 13:12

Þrjú stig í hús hjá Helga Val

Helgi Valur Daníelsson spilaði allan leikinn með AIK sem lagði Öster 3-2 á útivelli í 9. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 12:30

Tár á hvarmi þegar Beckham kvaddi

Knattspyrnuheimurinn kvaddi einn sinn dáðasta son í gærkvöldi þegar David Beckham spilaði sinn síðasta leik á ferlinum. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 06:00

Skrautlegt mark Sabrínu

Valur og ÍBV gerðu 3-3 jafntefli í 3. umferð Pepsi-deildar kvenna í frábærum fótboltaleik. Hér má sjá helstu atvik úr þeim leik sem enginn verður svikinn af. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 21:45

Santos hafnaði tilboði Barcelona í Neymar

Varaforseti brasilíska knattspyrnuliðsins Santos, Odilio Rodrigues, hefur staðfest að félagið hafi hafnað tilboði Barcelona í stórstjörnu sína, Neymar. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 20:51

Beckham kvaddi með stoðsendingu

David Beckham lék sinn síðasta knattspyrnuleik á ferlinu í kvöld þegar PSG sigraði Brest í París í kvöld og lagði upp eitt marka liðsins en Zlatan Ibrahimovic skoraði hin tvö mörkin. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 19:48

Risaskref hjá Margréti Láru

Márgrét Lára Viðarsdóttir lék allan leikinn fyrir Kristinstad sem tapaði 2-1 fyrir Linköping í dag. Margrét Lára lék þar sinn fyrsta heila leik í 7 mánuði þegar aðeins 7 vikur eru í Evrópumót landslið... Meira
Fótbolti 18. maí 2013 19:11

Jafntefli á Sauðárkróki

Annarri umferð 1. deildar karla í fótbolta lauk í kvöld á Sauðárkróki þar sem Tindastóll og Völsungur skildu jöfn 1-1. Fyrstu stig Völsungs í deildinni þar staðreynd. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 18:30

Emil og félagar upp í ítölsku A-deildina

Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona tryggðu sér í dag sæti í ítölsku A-deildinni í fótbolta. Liðið slapp með skrekkinn í loka umferðinni í dag. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 17:55

Jafnt á Leiknisvelli

Leiknir og KF gerðu 1-1 jafntefli í Breiðholti í 1. deild karla í fótbolta í dag. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 17:50

Þór/KA landaði fyrsta sigrinum

Íslandsmeistarar Þórs/KA unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Pepsí deild kvenna þegar liðið lagði HK/Víking í Fossvoginum 4-1. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 17:01

BÍ/Bolungarvík á toppinn

BÍ/Bolungarvík skellti Þrótti 2-1 á Torfnesvelli þegar liðin mættust í 1. deild karla í fótbolta í dag. BÍ/Bolungarvík er því eina liðið með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 15:56

Fjölnir stal stigi á Akureyri

Fjölnir sótti stig á Akureyri þegar liðið sótti KA heim í 1. deild karla í fótbolta í Atli Már Þorbergsson jafnaði metin á síðustu mínútum leiksins. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 14:48

Kristianstad tapaði á heimavelli

Íslendingaliðið Kristianstad tapaði 2-1 á heimavelli gegn Linköping í úrvalsdeild kvenna í fótbolta í Svíþjóð í dag. Meira
Fótbolti 17. maí 2013 22:52

Falcao búinn að vinna sjö úrslitaleiki í röð - hefur aldrei tapað

Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao varð í kvöld spænskur bikarmeistari með Atlético Madrid en liðið vann þá 2-1 sigur á Real Madrid í framlengdum bikarúrslitaleik á Santiago Bernabéu. Meira
Fótbolti 17. maí 2013 22:12

Atlético vann Real í bikarúrslitaleiknum - Ronaldo fékk rautt

Atlético Madrid er spænskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Real Madrid í framlengdum bikarúrslitaleik á Santiago Bernabéu í kvöld. Brasilíumaðurinn Miranda skoraði sigurmarkið á 98. mín... Meira
Fótbolti 17. maí 2013 22:00

Ein sú allra besta verður áfram hjá Lyon

Lotta Schelin, ein allra besta knattspyrnukona heims, hefur gert nýjan þriggja ára samning við franska félagið Olympique Lyon en hún hefur spilað með Lyon-liðinu frá 2008 og á um næstu helgi möguleika... Meira
Fótbolti 17. maí 2013 10:56

Stelpurnar okkar bara á Eurosport?

Engin íslensk sjónvarpsstöð hefur enn keypt sýningarréttinn á Evrópumeistaramóti kvenna í knattspyrnu sem fer fram í Svíþjóð í sumar. Meira
Fótbolti 17. maí 2013 10:18

Klinsmann vill fá Aron í landsliðið

Jürgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins, hefur lýst því yfir að hann vilji fá Aron Jóhannsson í lið sitt sem allra fyrst. Meira
Fótbolti 17. maí 2013 09:31

Balotelli veit ekki hvernig hann skiptir út egginu

Mario Balotelli er kominn á Twitter. Loksins, segja sumir, enda notast hann við nafnið @finallymario. Hann á þó í vandræðum með að skipta um forsíðumynd á síðunni sinni. Meira
Fótbolti 17. maí 2013 06:00

Xavi: Mourinho fór skelfilega illa með Casillas

Xavi, leikmaður Barcelona, er allt annað en sáttur með þá meðferð sem Iker Casillas, liðsfélagi hans úr spænska landsliðinu, fékk hjá Real Madrid á þessu tímabili. Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid,... Meira
Fótbolti 16. maí 2013 20:29

Stórt tap hjá Eiði Smára og félögum

Anderlecht og Zulte-Waregem munu mætast í hreinum úrslitaleik um belgíska meistaratitilinn eftir sigur beggja liða í næstsíðustu umferð meistaraumspilsins í belgísku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Meira
Fótbolti 16. maí 2013 20:00

Sex leikja bið Start eftir sigri á enda

Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Kristjánsson fögnuðu flottum útisigri í kvöld með félögum sínum í Start en liðið vann þá 1-0 sigur á Odd. Þetta var fyrsti deildarsigur Start í sex leikjum eða síðan... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Elfar Freyr: Þjálfarinn vildi ekki fá mig
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000