Erlent

Eldveggur Clinton utan um lykilríki leið hennar að sigri

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Clinton treystir á að svokallaður eldveggur um sex lykilríki muni halda og tryggja að kona verði í fyrsta sinn forseti Bandaríkjanna.
Clinton treystir á að svokallaður eldveggur um sex lykilríki muni halda og tryggja að kona verði í fyrsta sinn forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Þrátt fyrir að Donald Trump, forsetaefni Repúblikana, hafi sótt á Hillary Clinton, forsetaefni Demókrata, í skoðanakönnunum í Bandaríkjunum á síðustu dögum eru sigurlíkur hennar umtalsvert meiri en Trump. Clinton treystir á að svokallaður eldveggur um sex lykilríki muni halda og tryggja að kona verði í fyrsta sinn forseti Bandaríkjanna.

Sé horft til síðustu forsetakosninga í Bandaríkjunum eru ákveðin ríki sem flokka má sem svokölluð sveifluríki (Swing states) þar sem stuðningur kjósenda sveiflast á milli kosninga. Þessi ríki eru Michigan, Wisconsin, Virginía, Colorado, Pennsylvanía, New Hampshire, Flórída, Norður-Karólina, Ohio, Iowa og Nevada.

Sigurlíkurnar samkvæmt tölfræðilíkani vefsíðunnar FiveThirtyEight.
Trump hefur sigið fram úr Clinton í ríkjum á borð við Flórída, Ohio, Iowa og Norður-Karólínu þar sem alls 68 kjörmenn eru í boði. Þessi ríki eru í lykilhlutverki fyrir Trump en hann þarf að vinna sigur í þeim öllum til að eiga möguleika á að vinna Clinton.

Clinton og helstu samstarfsmenn virðast þó ekki hafa haft miklar áhyggjur af þessari þróun enda er langt síðan framboð hennar kom auga á sex sveifluríki sem tryggja munu Clinton sigur takist henni að vinna þar. Í öllum þessum sex ríkjum hefur Clinton haft mikla og góða forystu lengst af.

Hvaða ríki eru þetta og af hverju eru þau kölluð eldveggur?

  • Michigan - 16 kjörmenn
  • Virginía - 13 kjörmenn
  • Wisconsin - 10 kjörmenn
  • Colorado - 9 kjörmenn
  • Pennsylvanía - 20 kjörmenn
  • New Hampshire - 4 kjörmenn
 

Eldveggur er hugtak úr tölvuheiminum og á við hugbúnað sem ver tölvur fyrir utanaðkomandi árásum. Ekkert á að geta komist í gegnum vegginn og þannig er hugtakið nýtt í tengslum við kosningarnar í Bandaríkjunum. Clinton og starfsmenn hennar telja að sama hvað Trump geri geti hann ekki unnið eitt af þessum sex ríkjum á sitt band.

Sé miðað við þau ríki sem yfirleitt kjósa frambjóðendur Demókrata nægir Clinton að vinna sigur í þessum sex ríkjum til þess að komast yfir þá 270 kjörmenn sem þarf til þess að verða næsti forseti Bandaríkjanna. Takist það skiptir engu máli þó að Trump vinni sigur í öðrum sveifluríkjum, honum tekst ekki að ná 270 kjörmönnum.

Úrslit kosninganna sigri Clinton í hefðbundnum Demókrataríkjum auk lykilríkjanna sex en tapi öðrum sveifluríkjum

Töluvert er síðan framboð Clinton hætti að eyða miklu púðri í auglýsingar í þessum ríkjum sem er öruggt merki um að framboðið telji að úrslitin þar séu ráðin. Sumir telja að þetta hafi verið misráðið hjá framboðinu enda hafi framboð Trump eytt miklu í auglýsingar í þessum ríkjum til þess að reyna að komast inn fyrir eldvegg Clinton.

Ætli Trump sér sigur þarf hann að næla sér í að minnsta kosti ellefu kjörmenn innan við eldvegg Clinton. Trump hefur sótt á, helst í New Hampshire sem er þó aðeins með fjóra kjörmenn. Bilið hefur einnig minnkað í öðrum ríkjum ogt ljóst er að Clinton og framboð hennar líta þessa þróun alvarlegri augum nú en fyrir nokkrum vikum. Clinton og eiginmaður hennar Bill, ásamt Barack Obama og öðrum þungavigtarmönnum innan Demókrataflokksins stefna á að koma við í þessum ríkjum á lokasprettinum.

Kosið verður aðfaranótt miðvikudags að íslenskum tíma. Spennan er mikil þó að Clinton þyki sigurstranglegri.


Tengdar fréttir

Litríku dragtirnar hennar Hillary Clinton

Forsetakosningar Bandaríkjana eru á morgun og þá er mikilvægt að kíkja yfir dragtirnar sem Clinton hefur boðið upp á í framboðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×