Innlent

Eldur í verkstæði á Selfossi

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Selfossi.
Frá Selfossi. Vísir/ERnir
Eldur kom upp á vélaverkstæði á Selfossi í nótt og var allt tiltækt lið Brunavarna Árnessýslu kallað út. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi kom eldurinn upp í dráttarvél sem var þar inni.

Eldurinn náði ekki að teygja anga sína í húsnæðið sjálft en reykskemmdir eru miklar. Þá má búast við því að reykskemmdir séu einnig í aðliggjandi fyrirtækjum í sama húsnæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×