Innlent

Eldur í vélaverkstæði í Dugguvogi

Samúel Karl Ólason skrifar
Eldur kom upp í Dugguvogi í kvöld og var allt tiltækt slökkvilið verið sent á vettvang. Eldurinn kviknaði í vélaverkstæði sem er samtengt gistiheimili og samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hefur eldurinn verið slökktur.

Í fyrstu var talið að eldurinn hefði komið upp í gistiheimilinu.

Engan sakaði og var verkstæðið mannlaust þegar eldurinn kom upp. Reykræstingu er nú lokið og þurfti einnig að reykræsta íbúðir á efri hæðum. Íbúðir voru fyrir ofan prentfyrirtækið þar sem eldurinn var.

Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Vísir/Jóhann K. Jóhannsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×