Erlent

Eldur í spænskri ferju

Sunna Karen SIgurþórsdóttir skrifar
Eldurinn varð fljótt stjórnlaus.
Eldurinn varð fljótt stjórnlaus. vísir/epa
Eldur kviknaði í spænsku ferjunni Sorrento síðdegis í dag með 150 innanborðs. Ferjan var á leið frá Palma á Mallorca til Valensía á Spáni þegar eldurinn kviknaði í bílaþilfari hennar. Þrjá skipverja sakaði þar af einn alvarlega.

Eldurinn varð fljótt stjórnlaus og urðu því allir farþegar að hraða sér í björgunarbáta og þaðan í ferju sem tók á móti þeim. Þyrla sótti hina slösuðu en þeir fóru síðastir frá borði.

Orsök eldsvoðans er enn ókunn en ekki er talið að ferjunni verði bjargað úr þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×