Innlent

Eldur í húsi á Bragagötu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Eldur kviknaði í húsi við Bragagötu í Reykjavík á tólfta tímanum í dag. Vel gekk að slökkva eldinn og vinnur slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu nú að reykræstingu.

Eldurinn kviknaði í eldhúsi íbúðarinnar og talið er líklegt að hann hafi kviknað út frá steikarpotti. Ekki er ljóst hvort einhverjar skemmdir hafi orðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×