Innlent

Eldur í fjölbýli í Eskihlíð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. Vísir/Stefán
Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu réðu niðurlögum elds sem kviknaði í ísskápi á fjórðu hæð í blokk við Eskihlíð á fjórða tímanum í dag. Íbúi var heima þegar eldurinn kviknaði en engin slys urðu á fólki.

Tveir brunabílar voru sendir á staðinn og voru slökkviliðsmenn við reykræstingu þegar Stefán Karlsson, ljósmyndara Fréttablaðsins og Vísis, bar að garði upp úr klukkan fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×