Formúla 1

Eldur í bílnum kostaði Hamilton | Tvöfaldur Red Bull sigur

Hamilton gengur niðurlútur frá bílnum í morgun.
Hamilton gengur niðurlútur frá bílnum í morgun. Vísir/getty
Titilvonir breska ökuþórsins Lewis Hamilton snarminnkuðu eftir að hann þurfti að hætta keppni í Malasíukappakstrinum í Formúlu 1 í dag þegar eldur kom upp í bifreið hans á 43. hring.

Hamilton sem er í harðri keppni við liðsfélaga sinn hjá Mercedes, Nico Rosberg, þurfti því að hætta keppni þrátt fyrir að vera með öruggt forskot þegar eldurinn kom upp.

Hamilton var á ráspól og virtist allt ætla að ganga með honum í dag. Náði hann góðri ræsingum og var með gott forskot þegar eldurinn kom upp en hann þurfti verulega á sigrinum að halda þegar stutt er eftir af tímabilinu.

Stefnir allt í að hann þurfi að horfa á eftir titlinum til liðsfélaga síns en Hamilton hefur hampað titlinum undanfarin tvö ár.

Rosberg lenti sjálfur í vandræðum þegar Sebastian Vettel keyrði inn í hann en honum tókst að laga stöðuna eftir að hlé var gert á kappakstrinum á 41. hring.

Tókst Rosberg að að vinna sig aftur inn í toppbaráttuna og krækja í þriðja sætið sem tryggðu honum fimmtán stig í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra.

Er munurinn því kominn upp í 23 stig þegar fimm umferðir eru eftir en Hamilton má varla við því að koma í mark á eftir Rosberg í annarri keppni.

Rosberg stefnir því hraðbyri á fyrsta titil sinn sem heimsmeistari ökuþóra en hann myndi þá feta í fótspör föður síns, Keke Rosberg, sem varð heimsmeistari 1982.

Ástralski ökuþórinn Daniel Ricciardo hjá Red Bull kom fyrstur í mark í Malasíu en hann er nú með 44 stiga forskot á Kimi Raikkonen hjá Ferrari í baráttunni um þriðja sætið.

Næstur kom liðsfélagi hans hjá Red Bull, Max Verstappen, en hann getur enn náð Ferrari-mönnunum Vettel og Raikkonen í 4-5 sæti heimsmeistarakeppni ökuþóra.

Jolyon Palmar nældi í fyrsta stig sitt á ferlinum í Formúlunni í dag en hinn 23. ára gamli Palmer kom í mark í tíunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×