Innlent

Eldur í bíl á Álftanesi

Gissur Sigurðsson skrifar
Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bílnum. Mynd úr safni.
Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bílnum. Mynd úr safni. Vísir/GVA
Eldur gaus upp í mannlausum bíl þar sem hann stóð fyrir utan fjölbýlishús á Álftanesi í gærkvöldi og var kallað á slökkvilið. Lögregla og heimafólk  hafði að mestu slökkt eldinn áður en það kom á vettvang og tekist þannig að koma í veg fyrir að eldurinn teygði sig í nálæga bíla.

Bíllinn er stórskemmdur ef ekki ónýtur. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í honum og rannsakar lögregla nú málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×