Körfubolti

Eldri maður hellti bjór yfir körfuboltamann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Við höfum séð ýmislegt á körfuboltavellinum í gegnum tíðina. Glæsileg tilþrif, dramatík, leikmenn að lemja áhorfendur en aldrei höfum við séð áhorfanda hella bjór yfir leikmann.

Það hlaut þó að koma að því og það gerðist í Ástralíu. Þá ákvað 83 ára gamall maður að nýta tækifærið og hella yfir Marcus Thornton, leikmann Sydney Kings.

Áhorfandinn sat á besta stað í húsinu og er Thornton rann í áttina að honum var hann fljótur til og hellti aðeins yfir leikmanninn.

Sá gamli hélt svo bara áfram að drekka bjórinn sinn eins og ekkert væri eðlilegra.

Honum var síðan vísað úr húsi. Sá gamli segist ekkert muna eftir atvikinu en hann er kominn í bann frá körfuboltaleikjum út þessa leiktíð.

Atvikið ótrúlega má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×