Skoðun

Eldri borgarar eiga að lifa með reisn

Björgvin Guðmundsson skrifar
Hvað þurfa eldri borgarar mikinn lífeyri á mánuði til þess að þeir geti lifað með reisn síðasta æviskeið sitt? Um þetta eru menn ekki á eitt sáttir. Hagstofan kannar ekki framfærslukostnað eldri borgara. En Hagstofan rannsakar reglulega meðaltalsútgjöld heimilanna í landinu til neyslu. Þessi rannsókn er neyslukönnun. Hún var síðast birt í desember 2013. Samkvæmt henni eru meðaltalsútgjöld einhleypinga til neyslu miklu meiri en sá lífeyrir, sem Tryggingastofnun skammtar einhleypum eldri borgurum.

Nánasarlega skammtað

Neyslukönnun Hagstofunnar segir okkur, að sá lífeyrir, sem Tryggingastofnun ríkisins skammtar eldri borgurum, hrekkur hvergi nærri fyrir brýnustu útgjöldum. Einhleypir eldri borgarar, sem einungis hafa tekjur frá Tryggingastofnun, hafa aðeins 192 þúsund krónur í lífeyri á mánuði eftir skatt frá TR. Miðað við neyslukönnun Hagstofunnar vantar 129 þúsund krónur á mánuði til þess að það dugi. Samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar þarf 321 þúsund á mánuði fyrir einhleyping. Það er nánasarlega skammtað til eldri borgara hjá Tryggingastofnun en að sjálfsögðu bera stjórnvöld ábyrgð á þessari skömmtun. Það er engin leið fyrir eldri borgara að lifa með reisn á 192 þús. kr. á mánuði. Með þessari skömmtun er verið að halda kjörum aldraðra niðri. Það verður að stórhækka þessar lífeyrisgreiðslur. Það má byrja á því að fara með lífeyrinn í 300 þúsund krónur á mánuði í áföngum. En síðan þarf lífeyririnn að hækka í 321 þúsund á mánuði í samræmi við neyslukönnun Hagstofunnar.

Misjafn hagur aldraðra

Hagur eldri borgara er mjög misjafn. Hann fer einkum eftir tvennu: Lífeyrissjóði og húsnæðiskostnaði. Það er tiltölulega lítill hópur eldri borgara, sem hefur góðan lífeyrissjóð. Þorri launþega, t.d ófaglært verkafólk og iðnaðarmenn hafa fremur lágan lífeyri mánaðarlega úr lífeyrissjóði. Og síðan gerist sú ósvinna, að tryggingabætur eru skertar mjög mikið vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Það er eins og eignaupptaka. Þeir eldri borgarar, sem eiga skuldlítið eigið húsnæði eru mun betur settir en þeir aldraðir, sem eiga mjög skuldsett húsnæði eða verða að taka húsnæði á leigu. Húsaleiga í Reykjavík er í dag 140-170 þúsund krónur á mánuði fyrir litla íbúð. Þegar slík leiga hefur verið greidd, er lítið eftir af lífeyrinum frá Tryggingastofnun fyrir öðrum útgjöldum.

125 þús kr. á mánuði í Noregi

Hvergi á Norðurlöndum er svona naumt skammtað til eldri borgara eins og hér. Þetta er skammarlega lágt hérna. Á Íslandi er grunnlífeyrir 36 þúsund krónur á mánuði. Annars staðar á Norðurlöndunum er grunnlífeyrir miklu hærri og ekki eins miklar skerðingar á tryggingabótum. Í Noregi er grunnlífeyrir 125 þúsund kr. á mánuð fyrir einhleypa eldri borgara. Allir eldri borgarar fá hann séu þeir norskir ríkisborgarar og hafa búið nægilega lengi í Noregi. Þar tíðkast ekki slík hungurlús og hér fyrir aldraða.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×