Innlent

Eldingaveðrið heldur eitthvað áfram

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Hér má sjá eldingu yfir Vestmannaeyjum í hádeginu í dag.
Hér má sjá eldingu yfir Vestmannaeyjum í hádeginu í dag. Vísir/Ólafur Jóhannesson
Þrumur og eldingar hafa verið á suðurströnd landsins og víðar í dag en búist er við að eldingaveðrið muni ganga niður þegar líða tekur á kvöldið. Síðasta elding var á Reykjanesi klukkan hálf sex í kvöld, að sögn Óla Þórs Árnasonar, veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

„Þetta eldingaveður er eiginlega bara bundið við þennan bakka sem er að fara yfir okkur núna. Það var elding í Keflavík um hálf sex leitið og við gætum fengið einhverjar fleiri, en svo er þetta líklega bara búið. Þessi bakki er núna að sigla yfir Reykjanesið,“ segir Óli Þór.

Veðrið hefur leikið Eyjamenn grátt því rafmagnslaust varð á sjötta tímanum í dag eftir að eldingu laust niður í loftlínu á Suðurlandi, en unnið er að viðgerð.

„Stormurinn er núna að mestu leyti bundinn við norðaustur- og austurland. Það sigldi smá úrkoma yfir höfuðborgarsvæðið, en fór hratt yfir og kemur ekkert meira við sögu eftir það. Síðan dregur jafnt og þétt úr vindi í nótt og það verður rólegheita veður í fyrramálið og megnið af morgundeginum en það verður áfram frekar hvasst fyrir austan og mikil rigning á suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum,“ segir Óli Þór.

Færð á vegum

Á vef Vegagerðarinnar segir að reiknað sé með mjög hvössum vindi af suðaustri vestantil á Norðurlandi fram undir kvöld, einkum frá Hrútafirði og norður í Skagafjörð. Reikna megi með veðurhæð 23-30 metrum á sekúndu og að hviður verði allt að 40-50 metrar á sekúndu, meðal annars í Fljótum og á Siglufjarðarvegi.

Vegir eru að mestu auðir á Suður- og Vesturlandi en krapi er á Bröttubrekku. Á Vestfjörðum er hálka á Steingrímsfjarðarheiði en hálkublettir á Þröskuldum, Kleifaheiði og Hálfdáni, og einnig á köflum á Ströndum.

Á Norðurlandi eru hálkublettir á fáeinum útvegum og á Mývatnsöræfum. Flughált er á Dettifossvegi. það er mjög hvasst í kringum Blönduós og á Vatnsskarði.

Það er hálka á Möðrudalsöræfum og krapi á Fjarðarheiði og Öxi og víða nokkuð hvasst.  Greiðfært er með suðausturströndinni.

Veðurhorfur á landinu

Minnkandi suðaustanátt og rigning með köflum, en suðaustan 18-25 A-til og lægir þar í kvöld. Talsverð eða jafnvel mikil rigning SA-lands, rigning með köflum um landið V-vert, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 4 til 10 stig. Lægir talsvert V-til í nótt, sunnan 3-10 og skúrir eða él þar á morgun og hiti 0 til 5 stig, en 15-23 og rigning eystra.

Á föstudag:

Suðlæg átt, 8-13 m/s og slydda eða rigning A-til, en léttir til undir kvöld. Hægari framan af degi, og skýjað með köflum V-til, en rigning eða slydda undir kvöld. Hiti kringum frostmark, en frostlaust við ströndina.

Á laugardag:

Vaxandi suðvestlæg átt með hlýnandi veðri. Rigning, einkum V-til, en þurrt og bjart fyrir austan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×