Innlent

Eldhnöttur lýsti upp næturhimininn - Myndband

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
mynd/skjáskot
Stór eldhnöttur lýsti upp næturhiminn Sverlovsk-héraðs í Rússlandi síðasta föstudag. Eldhnötturinn hefur vakið gríðarlega mikla athygli um heim allan eftir að myndband af blossanum birtist á veraldarvefnum.

Vísindamenn og stjórnvöld hafa klórað sér í höfðinu frá því að eldhnötturinn birtist og ýmsar kenningar hafa verið á lofti. Spjótin beinast þó að sprengingu á jörðu niðri – líklega frá vopnabúri rússneska hersins. Aðrir telja þó að þarna hafi loftsteinn verið að springa eða að um furðuhlut hafi verið að ræða.

Dæmi hver fyrir sig en myndbandið umrædda má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×