Lífið

Eldar sinn eigin mat sjálfur

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Neutral Milk Hotel kemur fram í Hörpu í kvöld.
Hljómsveitin Neutral Milk Hotel kemur fram í Hörpu í kvöld. mynd/einkasafn
„Jeff eldar allavega matinn sinn sjálfur, ég veit ekki af hverju en það er líklega vegna þess að honum þykir það bara betra. Ég er einmitt að ná í hrísgrjónapott fyrir hann núna,“ segir Baldvin Esra tónleikahaldari, en Jeff Mangum og hljómsveitin hans, Neutral Milk Hotel kemur fram í Hörpu í kvöld.

Neutral Milk Hotel var stofnuð af Jeff Mangum í lok níunda áratugarins og gaf út nokkrar kassettur og smáplötur fyrstu árin. Árið 1996 kom út fyrsta breiðskífa þeirra, platan On Avery Island. Þá voru þeir Jeremy Barnes, Scott Spillane og Julian Koster gegnir til liðs við Jeff Mangum.

Það var svo árið 1998 sem önnur plata sveitarinnar kom út, meistarastykkið In the Aeroplane Over the Sea. Platan hlaut ljómandi góðar viðtökur og vinsældir hljómsveitarinnar jukust samhliða. Hljómplatan er hátt skrifuð og að mati miðla á borð við Pitchfork, Stereogum, Paste Magazine og Rolling Stone er hún með betri plötum tíunda áratugarins og oft talin upp í sömu andrá og plötur á borð við OK Computer með Radiohead, Loveless með My Bloody Valentine og Soft Bulletin með Flaming Lips þegar tíundi áratugurinn er rifjaður upp.

„Það rokselst á tónleikana og það er mikil stemning innan herbúðar hljómsveitarinnar. Meðlimir sveitarinnar eru búnir að skella sér í Bláa lónið, hafa farið Gullna hringinn og kunna vel við sig hér á landi,“ segir Baldvin.

Neutral Milk Hotel hefur haft áhrif á fjölda annarra tónlistarmanna og meðal þeirra sem nefna þá sem áhrifavalda eru hljómsveitir á borð við Arcade Fire, The Decemberists og Franz Ferdinand.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 en íslenska hljómsveitin Sin Fang hitar upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×