Matur

Eldar sex kalkúna fyrir þakkargjörðarhátíðina

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sjónvarpskokkurinn Guy Fieri er þekktur fyrir að vera bráðskemmtilegur og hress kokkur en hann ætlar að bjóða sextíu manns í mat á þakkargjörðarhátíðinni á morgun.

Það dugar ekkert minna en sex kalkúnar ofan í þennan mannskap en eins og Guy segir í samtali við Rolling Stone þá eldar hann kalkúnana ekki alla eins.

„Einn af bestu fuglum sem ég hef smakkað er kallaður Turducken. Kjúklingur inni í önd sem er inni í kalkún. Ég elska hann. Ég hef matreitt hann nokkrum sinnum. Í ár ætla ég að troða svínalund inní beinlausan kalkún. Þannig að ég er með kalkún hér, ég úrbeina hann og matreiði hann með sósu, fennikku, salvíu, hvítlauk og rauðum chili-flögum. Síðan rúlla ég honum upp, set snæri um hann og steiki hann allan. Það ætti að verða athyglisvert. Ég kalla þennan fugl Turketta,“ segir Guy.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×