Innlent

Eldar Ástþórsson tekur sæti á Alþingi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Eldar Ástþórsson, varaþingmaður Bjartrar framtíðar og upplýsingafulltrúi CCP.
Eldar Ástþórsson, varaþingmaður Bjartrar framtíðar og upplýsingafulltrúi CCP. vísir/stefán
Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP, tók sæti á Alþingi í dag fyrir Bjarta framtíð. Eldar var í 3. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður en fyrsti varaþingmaður flokksins, Heiða Kristín Helgadóttir, boðaði forföll.

Eldar hefur ekki tekið sæti áður á Alþingi og undirritaði því drengskaparheit að stjórnarskránni í dag. Hann kemur inn fyrir Björt Ólafsdóttur sem á von á tvíburum á næstunni og fer því af þingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×