Innlent

Ekki vitað hvað hreinsunarstarf á Úlfljótsvatni mun kosta

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Einn af skálunum við Úlfljótsvatn í dag sem var þrifinn um helgina.
Einn af skálunum við Úlfljótsvatn í dag sem var þrifinn um helgina. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson

Síðustu skátahóparnir sem dvöldu á Úlfljótsvatni þegar nóróveirusýking kom þar upp í síðustu viku fara þaðan í dag. Nú tekur við umfangsmikið hreinsunarstarf. Ekki er vitað hver þarf að bera kostnaðinn af þrifunum.



„Ég geri ráð fyrir því að hann lendi á okkur,“ segir Elín Esther Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Úlfljótsvatns í samtali við Vísi, aðspurð um hver muni bera kostnað af hreinsunarstarfi.



Hún segist ekki vera viss um hve hár kostnaðurinn verður.



„Nei það hlýtur að fara mjög mikið eftir því hvernig við gerum þetta. Við munum vonandi fá leiðbeiningar í dag um það hvaða leiðir eru færar og munum þá meta hvað myndi meika mest sens.

Lokað í þrjár vikur

Elín segir að þau leggi ekki áherslu á að hreinsunarstarfið taki fljótt af. Ákvörðun hafi verið tekin um að loka staðnum næstu þrjár vikurnar.



„Að þeim loknum á ekki að vera mögulegt að veiran sé enn til staðar. Þess vegna er þetta ekki klukkutímaspursmál að hefja hreinsunina en við þurfum auðvitað að gera það til að geta notað byggingar og undirbúa opnun á ný.“



Á níunda tug höfðu sýkst af nóróveirusýkingu á Úlfljótsvatni á fimm dögum. Tíu manns, þar af einn starfsmaður, á Úlfljótsvatni voru enn veikir af sýkingunni um hádegi í gær.



181 erlendur skáti og foringjar voru færðir í einangrun í grunnskólann í Hveragerði aðfaranótt föstudags eftir að á sjötta tug þeirra greindust með fyrrnefnd einkenni nóróveiru. Bati flestra var þó fljótur og allir höfðu verið útskrifaðir á sunnudag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×