Lífið

Ekki við eina fjölina felldur

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Stefán Máni er lipur í eldhúsinu.
Stefán Máni er lipur í eldhúsinu. Vísir/GVA
Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson er svo sannarlega ekki við eina fjölina felldur því hann býður nú upp á matarblogg á Facebook-síðu sinni.

Í gær birti hann til að mynda gómsæta uppskrift að pastarétti með risarækjum og lét hann myndir fylgja svo ekkert færi á milli mála.

„Það er ekkert planað svo sem, ég var bara svo glaður þegar ég sá hvað þetta var flottur réttur. Ég er alveg vís til að gera þetta af og til,“ segir Stefán Máni spurður út í hvort hann ætli sér að vera virkur matarbloggari í framhaldinu.

Stefán Máni sem er líklega best þekktur sem rithöfundur segist vera nokkuð lipur í eldhúsinu. „Ég er fínn kokkur þegar ég gef mig í það og fæ mikið út úr því. Ég hef gaman af þessu,“ segir Stefán Máni um færnina í eldhúsinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×