Innlent

Ekki verið haft samband vegna mögulegs leiðtogafundar

atli ísleifsson skrifar
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Hvorki bandarísk né rússnesk stjórnvöld hafa haft samband við utanríkisráðuneytið vegna mögulegs leiðtogafundar Donald Trump og Vladimír Pútín hér á landi.

Frá þessu greindi starfsmaður utanríkisráðuneytisins í samtali við Vísi í hádeginu.

Misvísandi fréttir af mögulegum leiðtogafundi forsetans verðandi, Trump, og Pútín Rússlandsforseta, sem fara ætti fram í Reykjavík, birtust í erlendum miðlum í gær.

Breska blaðið The Sunday Times sagði að starfsfólk Trumps undirbyggi nú fundinn en Sean Spic­er, fjölmiðlafulltrúi Trumps, sagði þetta hins vegar fjarri sanni. Heimildarmenn Reuters úr herbúðum Trumps sögðu einnig að fréttin væri röng.

Financial Times greindi hins vegar frá því að það væru menn Pútín sem hefðu slíkan fund í huga og ynnu að honum. „Fyrsti fundurinn ætti hvorki að fara fram í Rússlandi né Bandaríkjunum heldur í óháðu landi,“ hafði Financial Times eftir ónefndum heimildarmanni í herbúðum Pútíns.

Ef af fundinum verður kallast staðarvalið á við leiðtogafund Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta og Mikhails Gorbatsjov, leiðtoga Sovétríkjanna, árið 1986, en sá fundur fór fram í Höfða.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sagði í samtali við fréttastofu í gær að stjórnvöld væru jákvæð gagnvart slíkum fundi ef til hans kæmi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×