Innlent

Ekki útlit fyrir áframhaldandi hlýindi

Hulda Hólmkelsdóttir og Þorbjörn Þórðarson skrifa
Spáð er 15-20 stiga hita á Norðaustur og Austurströnd landsins þegar best lægir í dag.
Spáð er 15-20 stiga hita á Norðaustur og Austurströnd landsins þegar best lægir í dag. Skjáskot/Veðurstofa
Óvenjulega mikill hiti er á landinu miðað við árstíma en spáð er 15-20 stiga hita á norðaustur- og austurströnd landsins þegar best lægir í dag.

Þorsteinn V. Jónsson, vakthafandi veðurfræðingur hjá veðurstofu Íslands, segir hlýtt loft sem nú fer yfir landið vera skýringuna á hlýindunum

„Það kom mjög hlýtt loft sem fór yfir landið núna í morgun og er enn yfir austanverðu landinu. Hitinn rauk svolítið upp í kjölfarið af því. Við sáum mest í morgun 16,3 hita á Seyðisfirði,“ segir Þorsteinn.

16,3 stiga hiti í febrúar á Seyðisfirði er nálægt meti á staðnum en mesti hiti sem mælst hefur í febrúar á Seyðisfirði frá því mælingar hófust á staðnum er 18 stig en það var í febrúar 1998. 

Hér á suðvesturhorninu er býsna heitt líka miðað við árstíma. Er óvenju heitt á öllu landinu miðað við febrúar?

„Já það er það. Það er óvenjulega hlýtt.“

Má búast við áframhaldandi hlýindum á landinu næstu vikur?

„Nei hitinn er frekar á niðurleið næstu daga. Það verður komin köld norðanátt á föstudag eða laugardag með snjókomu og éljagangi fyrir norðan og austan.“

Vonir þeirra sem voru dýpst í sínum hjartarótum að vonast eftir því að þetta milda veður myndi haldast, þú ætlar að deyða þær vonir núna?

„Nei myndi nú ekki segja það. En ég vil minna á að það er enn hávetur hérna á norðurslóðum og við eigum allan mars eftir og heminginn af febrúar. Það getur ýmislegt gerst enn og útlit fyrir að það fari að kólna næstu helgi.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:

Sunnan 5-13 m/s. Léttskýjað NA-til á landinu, annars skýjað og dálítil rigning eða slydda með köflum. Hiti 1 til 8 stig, en vægt frost í innsveitum NA-lands.

Á þriðjudag:

Suðaustanátt, víða 8-13 m/s og súld eða rigning, en þurrt á NA- og A-landi. Hiti 3 til 8 stig.

Á miðvikudag og fimmtudag:

Austlæg átt og rigning með köflum, hiti breytist lítið.

Á föstudag:

Breytileg átt og víða rigning, en líklega slydda eða snjókoma N-lands. Kólnandi veður.

Á laugardag:

Útlit fyrir norðaustanátt með snjókomu eða éljum N- og A-lands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×