Ekki til skrifleg stefnumótun í útlendingamálum Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 12. maí 2014 19:15
Izekor Osazee, flóttamaður frá Nígeríu, kom hingað til lands í ágúst 2012 og sótti um hæli. Hún giftist Gísla Jóhanni Grétarssyni tólfta apríl síðastliðinn, en í síðustu viku var henni tilkynnt að henni yrði vísað úr landi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. DV greindi fyrst frá málinu. Izekor var handtekin klukkan tíu í morgun þegar hún kom á lögreglustöðina til að sinna tilkynningaskyldu. Fljótlega eftir að hún var handtekin kom fólk saman við lögreglustöðina til að mótmæla og krefjast þess að henni yrði sleppt úr haldi. Gísli Jóhann fékk að vera í einn klukkutíma með konu sinni og var í miklu uppnámi þegar við ræddum við hann eftir hádegi. „Þetta er ástin í lífi mínu og ég myndi gera allt fyrir hana. Ég skil ekki hvers vegna hún þarf eitthvað leyfi til að fá að vera með mér. Þetta er skammarlegt og ég hef bara misst alla trú á þessu kerfi,“ sagði Gísli. Einnig var mótmælt við Útlendingastofnun, en skilyrði til að fá útgefið dvalarleyfi hér á landi er til dæmis að umsækjandi sé í hjúskap með íslenskum ríkisborgara. Mótmælendurnir sóttu nokkuð hart að Kristínu Völundardóttur, forstjóra stofnunarinnar, og spurðu hvort til væri stefna í útlendingamálum á Íslandi. Hún svaraði þá að engin skrifleg stefna væri til en að stefna stjórnvalda fælist í lögum. Seinnipartinn í dag var svo tekin ákvörðun um að Izekor yrði sleppt úr haldi og ekki send úr landi í fyrramálið eins og til stóð vegna stefnumótunar í Innanríkisráðuneytinu. Helga Vala Helgadóttir, lögmaður Izekor, segist vona að þetta verði til þess að sambærileg mál verði unnin með sama hætti.
Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Sjá meira