Innlent

Ekki þörf á sérstökum aðgerðum vegna snjóalaga

Svavar Hávarðsson skrifar
Mikil vinna bíður við að létta á snjófarginu sem nú liggur yfir.
Mikil vinna bíður við að létta á snjófarginu sem nú liggur yfir. vísir/vilhelm
Ekki er talin þörf á því að grípa til sérstakra aðgerða vegna snjóalaga innan höfuðborgarsvæðisins – en vitað er að hreinsun gatna og stíga mun taka töluvert langan tíma. Öllu er tjaldað til, öfugt við það sem gerðist þegar öfgarnar sneru í hina áttina framan af vetri – sem kemur vel fram í tölfræði borgarinnar vegna vetrarþjónustu. Menn þakka hins vegar almættinu fyrir blíðuna sem fylgdi í kjölfar snjókomunnar.

Hjalti Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, segir það ekki skipta neinu sérstöku máli fyrir þá sem sinna vetrarþjónustu hvort fallið hafi 20 eða rúmlega 50 sentimetrar af snjó á stuttum tíma – unnið sé eftir sömu áætlun í báðum tilvikum.

„Við erum með sólarhringsvakt frá nóvember og út apríl, þá vöktum við aðstæður og bregðumst við eftir þörfum. Verkefnin eru áþekk – en eru auðvitað tímafrekari við þessar aðstæður,“ segir Hjalti og bætir við að á nokkrum stöðum þurfi að keyra burt snjó – einkanlega þar sem þröngt er í íbúðahverfum.

Hjalti segir hreinsunarstarfið ganga vel – það sé ekki því síst að þakka að borgararnir sýna því mikinn skilning hversu erfitt verkefnið er og að ljúka því svo öllum líki. Í fyrrinótt var byrjað á húsagötum af alvöru og samhliða því að breikka og víkka þar sem farið hefur verið um nú þegar.

„Á sunnudeginum vorum við líkast til með um 50 tæki í gangi, en í nótt [aðfaranótt mánudags] með rúmlega 30 tæki úti og það heldur sér næstu daga. Bæði er þetta okkar vinna og verktaka, sem ég veit ekki nákvæmlega hvað eru margir – en það er bæði einyrkjar og stærri verktakar. Það er reynt að nota allt sem ræður við þetta snjómagn á annað borð,“ segir Hjalti sem viðurkennir aðspurður að hefði blásið hressilega í kjölfar snjókomunnar hefði mikill vandi hlotist af, og ekki verið við neitt ráðið.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×