Ekki sýnt fram á öryggi erfðabreytts lyfjabyggs

Fréttablaðið Aðsendar greinar 03. september 2010 05:00
Sandra B. Jónsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
Sandra B. Jónsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi

Í Fréttablaðsgrein 23. ágúst s.l. auglýsa forráðamenn Orf Líftækni hf. ágæti vísinda sinna og fullyrða að útiræktun fyrirtækisins á erfðabreyttu lyfjabyggi sé örugg. Áhætta sem þeir ræða, svo og áhætta sem þeir láta hjá líða að ræða, kallar á andsvör.

Leyfi Orf til ræktunar á erfðabreyttu lyfjabyggi á allt að 10 ha lands í Gunnarsholti á 5 ára tímabili var veitt á grundvelli áhættumats sem byggði einkum á mjög takmörkuðum tilraunum sem einn af hluthöfum þess, Landbúnaðarháskóli Íslands, gerði. Í áðurnefndri grein klifa höfundar á öryggi ræktunar á erfðabreyttu byggi á grundvelli þessara litlu tilrauna. Þeir telja fráleitt að erfðabreytt lyfjabygg víxlfrjóvgist við annað bygg eða villtar plöntur þrátt fyrir að notkun sjálffrjóvgandi tegunda eins og byggs fyrirbyggi ekki heldur einungis minnki hættu á víxlfrjóvgun. Þeir halda því fram að erfðabreytt byggfræ dreifist ekki meir en 25 metra út frá vaxtarstað og að hafa megi hemil á plöntum sem vaxi af því fræi með því að slá þær. Hugsanlegt er að sú aðferð dugi þegar um er að ræða litla tilraunabletti undir nánu eftirliti þeirra sem stýra viðkomandi rannsókn en er með öllu ógerlegt þegar ræktað er á stærra landi með lágmarks starfsliði. Það er fjárhagslega óhagkvæmt að leita uppi og eyða liðhlaupaplöntum ef rækta á erfðabreytt bygg til framleiðslu; tími og vinnukostnaður myndu eyða mögulegum hagnaði af útiræktun erfðabreytts byggs. Orf hefur kynnt áform um „stórfellda" ræktun á erfðabreyttu byggi í Gunnarsholti og lætur sem frædreifing sé ekkert vandamál því fræ sem sleppi lifi ekki af utan ræktunarakra. Hvarvetna í heiminum þar sem erfðabreyttar plöntur hafa verið ræktaðar um nokkurt skeið hafa erfðabreytt fræ sloppið út í villta náttúru þar sem þau spíra og fjölga sér. Lifun liðhlaupafræs mun aukast á Íslandi með hlýrri og styttri vetrum.

Orf flaggar vísindalegu ágæti eigin áhættumats en lætur þess ekki getið að þar er hvergi fjallað um greiningu á grunnvatni og jarðvegi, – nokkuð sem allt faglegt mat á umhverfisáhættu tekur fyrir í ljósi þess að erfðabreytt DNA getur haft áhrif á jarðvegsörverur og mengað vatnasvið. Þótt Orf hafi aðeins leyfi til tilraunaræktunar í Gunnarsholti hefur fyrirtækið kynnt áform um stórfellda ræktun á erfðabreyttu byggi. Í Bandaríkjunum og í Evrópu eru leyfi til framleiðsluræktunar erfðabreyttra plantna aðeins veitt að undangengnum fóðrunartilraunum á dýrum og mati yfirvalda á niðurstöðum þeirra. Orf hefur ekki gert slíkar tilraunir og fyrirtækið hefur heldur ekki leyfi til ræktunar fyrir framleiðslu í Gunnarsholti. Er hugsanlegt að fyrirtækið hyggist misnota tilraunaleyfi sitt í Gunnarsholti til framleiðsluræktunar á erfðabreyttu byggi?

Orf fullyrðir að erfðabreytt byggyrki þess séu óskaðleg dýrum en hafa samt ekki gert neinar prófanir til að sanna það. Þess í stað fullyrðir fyrirtækið að ef dýr innbyrði erfðabreytt byggfræ yrðu þau ekki fyrir heilsutjóni vegna þess að DNA í erfðabreyttum plöntum eyðileggist í meltingarvegi þeirra. Orf hlýtur að gera sér grein fyrir að sú fullyrðing stenst ekki vísindalega rýni. Óháðar ritrýndar vísindarannsóknir hafa sýnt fram á að hvorki meltingarvegur manna né dýra sundri öllu DNA úr erfðabreyttum plöntum. Þvert á móti sýna þær að DNA berst úr erfðabreyttum matvælum og fóðri í þarma manna og dýra og berst með blóði til einstakra líffæra. Genaflæði af þessum toga (horizontal gene transfer) var þekkt þegar árið 2001 og hefur síðan verið vísindalega staðfest í rannsóknum. Prófanir á búfé, t.d. sauðfé, svínum og geitum, hafa leitt í ljós erfðabreytt DNA í líffærum dýra sem neytt hafa erfðabreyttra plantna. Ekki færri en þrettán ritrýndar rannsóknir á tilraunadýrum sem fóðruð voru á erfðabreyttum afurðum leiddu í ljós tjón á næstum öllum helstu líffærum þeirra.

Nýleg rannsókn sem birtist í tímaritinu Fisheries Science vekur sérstakar áhyggjur varðandi erfðabreyttar plöntur á Íslandi. Við rannsókn á regnbogasilungi og beitarfiski fundust efni úr erfðabreyttum plöntum ekki aðeins í nokkrum líffærum beggja tegunda, heldur í næstum öllum innri líffærum þeirra. Ræktun erfðabreyttra plantna, ekki síst mjög lífvirkra erfðabreyttra plantna á borð við lyfjabygg, gæti ógnað villtum og ræktuðum fiski sem þjóðin byggir afkomu sína mjög á. Fiskistofnum landsins gæti jafnvel stafað ógn af inniræktun erfðabreyttra plantna í gróðurhúsum án fastra gólfa á svæðum með háa grunnvatsstöðu eða í nánd við ár og vötn.

Það er brýn þörf á því að bæta gæði og umfang umhverfisáhættumats sem krafist er af líftæknifyrirtækjum sem sækjast eftir að rækta erfðabreyttar plöntur á Íslandi, innandyra sem utandyra.


Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Fasteignir
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Ekki sýnt fram á öryggi erfðabreytts lyfjabyggs