Erlent

Ekki sannfærðir um að ferðabann hafi verið ólöglegt

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Dómarar við áfrýjunardómstólinn í San Francisco í Bandaríkjunum íhuga nú hvort ferðabann til Bandaríkjanna sem Donald Trump forseti setti á íbúa sjö ríkja á dögunum standist lög.
Dómarar við áfrýjunardómstólinn í San Francisco í Bandaríkjunum íhuga nú hvort ferðabann til Bandaríkjanna sem Donald Trump forseti setti á íbúa sjö ríkja á dögunum standist lög. Vísir/EPA
Dómarar við áfrýjunardómstólinn í San Francisco í Bandaríkjunum íhuga nú hvort ferðabann til Bandaríkjanna sem Donald Trump forseti setti á íbúa sjö ríkja á dögunum standist lög. 

Um var að ræða borgara Írans, Íraks, Líbíu, Sómalíu, Súdan, Sýrlands og Jemen. 

Þrír dómarar eru í dómnum og hafa þeir nú hlustað á rök lögmanna beggja aðila, en dómari í Washington ríki úrskurðaði á dögunum að bannið skyldi afnumið. 

Þeirri ákvörðun var áfrýjað af dómsmálaráðuneytinu og er búist við niðurstöðu frá dómstólnum í þessari viku. Að öllum líkindum fer málið þó alla leið fyrir hæstarétt Bandaríkjanna.

Málið var tekið fyrir í gær og spurði Richard Clifton, einn þriggja dómara í málinu, meðal annars hvort að tilskipunin gæti talist fordómafull þar sem hún hefði einungis áhrif á 15 prósent allra múslima í heiminum. 

Noah Purcell, aðstoðardómsmálaráðherra Washington ríkis, sagði bannið hafa haft áhrif á þúsundir íbúa ríkisins, til að mynda hefðu margir nemar ekki getað ferðast til Washington og íbúar ekki getað heimsótt fjölskyldu í útlöndum.

Þá benti hann einnig á ummæli Rudy Giuliani, eins helsta ráðgjafa forsetans, um að hann hafi verið beðinn um að leita leiða til að framkvæma múslimabann á löglegan hátt. Þá sagði Purcell jafnframt að úrskurður dómara í Washington að bannið skyldi afnumið hefði ekki skaðað bandarísk yfirvöld.

August Flentje, sem fer með málið fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, sagði að þingið hefði heimilað forsetanum að stjórna því hverjir geti ferðast til Bandaríkjanna. Þegar hann var beðinn um sannanir þess efnis að þau sjö ríki sem voru nefnd í tilskipuninni ógni öryggi landsins sagði hann að þó nokkrir Sómalíubúar í Bandaríkjunum hefðu tengsl við al-Shabaab hryðjuverkasamtökin.


Tengdar fréttir

Dómsmálaráðuneytið ver ferðabann Trumps

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna segir ferðabann Donalds Trump Bandaríkjaforseta vera löglegt og hvetur áfrýjunardómstól til að festa tilskipunina aftur í gildi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×